
ÁBYRG STJÓRNMÁL
-
Tökum pólitíska ábyrgð alvarlega. Kjörnir fulltrúar eru kosnir til að taka ákvarðanir og fylgja verkefnum eftir. Þannig vinnum við.
-
Skýr stefna í fjármálum. Mótum skýra fjármálastefnu með forgangsröðun verkefna, mælanlegum markmiðum og eftirfylgni.
-
Sanngjörn gjaldtaka. Það er pólitísk ákvörðun að hækka gjöld á íbúa. Þótt fasteignamatið hækki þá þýðir það ekki sjálfkrafa að þín gjöld eigi að hækka.
-
Verjum þjónustu, innviði og störf. Berjumst fyrir hagsmunum íbúa og atvinnulífs, það skiptir máli.
-
Ánægðir starfsmenn. Fyrirtækin vita að ánægður starfsmaður er betri starfsmaður. Leggjum áherslu á starfsánægju og gott starfsumhverfi.
ÖFLUGT ATVINNULÍF Á STERKUM STOÐUM
-
Sterkar rætur, stöðug gróska. Styðjum við akureyskt atvinnulíf og sköpum virkan vettvang fyrir samvinnu.
-
Sækjum nýjar fjárfestingar og fólk með öflugri markaðssetningu. Byggjum undir gróskufullt atvinnulíf fyrir komandi kynslóðir.
-
Undirstöðurnar skipta máli. Berjumst fyrir öruggri heimahöfn verk- og tæknigreina á Norðurlandi.
-
Meira pláss og sveigjanleiki. Setjum á fót geymslusvæði þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta leigt öruggt rými fyrir tæki og tól.
-
Nægt framboð atvinnulóða sem mætir eftirspurn og laðar að nýja starfsemi.
HÚSNÆÐI, HÚSNÆÐI, HÚSNÆÐI
-
Hlustum á þarfir íbúa. Aukum framboð af íbúðum fyrir alla hópa samfélagsins með margvíslegum leiðum. Hefjum átak í húsnæðismálum ungs fólks.
-
Ódýrara húsnæði. Auglýsum lóðir undir hagkvæmt húsnæði. Förum í hugmyndasamkeppni og finnum nýjar lausnir.
-
Fjölbreyttar og skemmtilegar lóðir. Skipuleggjum skemmtilegar einbýlishúsalóðir og lóðir undir rað- og parhús.
-
Lóðarskortur er dýr. Tryggjum framboðshliðina með lóðir sem hilluvöru og festumst ekki í útboðsleiðinni.
-
Byggjum ekki of þétt í nýjum hverfum og gerum ráð fyrir grænum svæðum og nægum bílastæðum.
FARSÆLD BARNA TIL FRAMTÍÐAR
-
Styðjum við skólastarf þannig að öll börn fái notið sín og kennarar finni fyrir stuðningi.
-
Grípum öll börn. Fylgjum Farsæld barna eftir og berjumst fyrir kerfi sem virkar. Tryggjum viðeigandi stuðningsúrræði hverju sinni.
-
Fjölbreytt nám. Sköpum góða aðstöðu fyrir verk- og skapandi greinar til að efla fjölbreytta færni og undirbúa nemendur fyrir framtíðina.
-
Hlúum að krílunum okkar. Setjum gólfhita í ungbarnadeildirnar okkar.
-
Aukum öryggi. Setjum umferðaröryggi skólabarna á dagskrá.
-
Tryggjum jafnræði þannig að foreldrar borgi það sama á leikskóla og hjá dagforeldri.
ÍÞRÓTTIR, ÚTIVIST, LEIKUR
-
Frístundir barna. Við viljum sjá gott framboð af skipulögðu frístundastarfi. Aukum opnunartíma félagsmiðstöðva, bjóðum upp á spennandi klúbba og komum á sumarfrístund.
-
Komum til móts við ólíkar þarfir. Styrkjum úrræði eins og Íþróttir fyrir alla, Íþróttafélaginn og frístundastarf barna með fötlun.
-
Það er gott að prófa fyrst. Fáum íþróttahreyfinguna í lið með okkur og gefum yngstu iðkendunum tækifæri á að prófa fleiri íþróttagreinar.
-
Gerum þetta almennilega. Við viljum byggja upp metnaðarfull íþróttasvæði sitthvoru megin við Glerána.
-
Útivist og jaðarsport. Hér er allskonar - höldum áfram að byggja upp útivistarsvæðin okkar og styðja við fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf.
LÍFSGÆÐI Á EFRI ÁRUM
-
Aðstaðan skiptir máli. Kraftmikið félagsstarf eldri borgara kallar á góða aðstöðu. Við viljum gera mun betur.
-
Íbúðir fyrir 65+ Stórfjölgum íbúðum sem henta eldri íbúum. Fyrsta verk nýrrar bæjarstjórnar ætti að vera að skipuleggja lóð undir lífsgæðakjarna.
-
Verum virk. Þróum áfram verkefnið Virk efri ár og styðjum við öflugt starf EBAK.
-
Vinnum gegn einsemd. Ráðumst í markvissar aðgerðir til að draga úr félagslegri einangrun eldri borgara og tryggjum öryggi stærri hóps með Heilsueflandi heimsóknum.
-
Samþætt þjónusta. Stofnum samtarfsvettvang allra sem koma að þjónustu við eldri borgara. Það er orðið mjög brýnt að samþætta félags-, dags- og heilbrigðisþjónustu.
HJARTAÐ Í BÆNUM
-
Fallegur miðbær býr til fjölbreytta þjónustu og góðar stundir. Gerum góðan miðbæ enn betri, enda stærsti áfangastaður Norðurlands.
-
Upplifunarbærinn Akureyri. Útivist, rómantík, dekur og ævintýri. Sköpum góða umgjörð fyrir frábæra upplifun og markaðssetjum upplifunarbæinn Akureyri.
-
Það jafnast ekkert á við eyjalífið. Gaman að heimsækja, yndislegt að dvelja. Kynnum tækifærin betur.
-
Viltu skapa nýja afþreyingu í bænum? Við viljum vinna með þér!